Algengir ofnæmis og óþolsvaldar í kjöti og vinnsluvörum
Egg
Mjólk þ.m.t. laktósi
Sojaprótein
Korn sem innhelsur glútein ( hveiti,rúgur,bygg,hafrar og spelt).
Sellerí,sinnep og sesam.
Til að forðast fæðuofnæmi er besta ráðið að forðast ofnnæmisvakann og hindra þannig ofnæmisviðbrögð eða jafnvel ofnæmislost. Norðlenska leggur mikla áherslu á öryggi matvæla og þvi er mjög mikilvægt að neytendur fái ítarlegar upplýsingar um samsetningu matvæla.
Merkingar matvæla
Mikilvægt er að tryggja neytendum réttar og greinargóðar upplýsingar um matvæli.
Merkingar matvælanna skulu vera þannig að upplýst sé um innihald pakkningarinnar, magn og geymsluþol. Upplýsingar um ofnæmis og
óþolsvalda skulu vera skýrar og feitletraðar á umbúðum. Upplýsingar um geymsluskilyrði verða að vera til staðar. Aðrar
upplýsingar s.s. um næringargildi og framleiðanda skulu vera greinilegar fyrir neytendur.
Nánari upplýsingar um matvælaöryggi má finna á heimasíðu Matvælastofnunar www.mast.is