Aðalfundur Búsældar og fleiri fundir
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Búsældar ehf verður haldinn í Ýdölum í Suður-Þingeyjarsýslu, þriðjudaginn 15. apríl, og hefst kl 13.00. (Súpa kl. 12:30 í boði Norðlenska).
Venjuleg aðalfundarstörf.
Einnig verður borin upp tillaga að breytingum á samþykktum félagsins.
Önnur mál.
Fundurinn er jafnframt upplýsingafundur um rekstur og málefni Norðlenska matborðsins ehf.
Stjórn Búsældar.
_ _ _ _ _
Búsæld og Norðlenska boða einnig til funda. Á fundunum verður farið yfir rekstur og málefni Norðlenska og Búsældar. Hittumst og ræðum málin. Boðið verður upp á hressingu á fundunum.
Fundir verða sem hér segir:
- Ýdalir, eins og áður sagði, 15. apríl kl. 13:00
- Hlíðarbær, Eyjafirði 16. apríl kl. 13:30
- Egilsstaðahúsið, Egilsstöðum 22. apríl kl. 13:00
- Hótel Bláfell, Breiðdal 22. apríl kl. 20:00
- Hótel Höfn 23. apríl kl. 13:00
- Ferðaþjónustan Efri-Vík 23. apríl kl. 20:00
- Álfheimar, Borgarfirði Eystri 24. apríl kl. 13:00
Búsæld og Norðlenska