Góðir vinir kvaddir
Í dag, þriðjudaginn 30. apríl, hætta þrír starfsmenn sem hafa verið lengi við störf hjá Norðlenska. Steinunn Harðardóttir á Húsavík hefur til dæmis unnið hjá fyrirtækinu í tæp 32 ár. Steinunn er á meðfylgjandi mynd ásamt Sigmundi Hreiðarssyni vinnslustjóra á Húsavík, þegar hún var kvödd með virktum í morgun. Í dag láta einnig af störfum Rögnvaldur Óli Pálmason sem hefur verið hjá fyrirtækinu í rúm 22 ár og Malee Vita sem starfað hefur hjá Norðlenska í 12 ár og var áður hjá Bautabúrinu.
Norðlenska þakkar öllum þremur kærlega fyrir samvinnuna og óska þeim velfarnaðar í því sem þau taka sér fyrir hendur.