Fréttir

Álagsgreiðslur vegna páskaslátrunar

Haustverð Norðlenska 2007 eru í gildi fyrir komandi páskaslátrun, en að auki verða greiddar 45 krónur á kíló í álag á flokka EURO og fituflokka 1, 2, 3 og 3+ ofan á verðskrá sl. haust.

Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni verður slátrað í aðdraganda páska bæði á Akureyri og Höfn. Slátrunin verður nk. föstudag, 7. mars, og ef þörf krefur verður einnig slátrað í næstu viku.

Þeir sem óska eftir að koma með páskalömb til slátrunar eru beðnir að hafa strax samband við Norðlenska á Akureyri og Höfn.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook