Fréttir

Allir hlæja á öskudaginn - og þiggja Goðapylsu

Hressir krakkar sem komu við á Norðlenska í morgun.
Hressir krakkar sem komu við á Norðlenska í morgun.

Líflegt hefur verið á Norðlenska í morgun eins og venjan er að morgni öskudags. Fjöldi skemmtilegra öskudagsliða hefur komið í heimsókn, sungið fyrir starfsfólkið og þegið Goðapylsu í brauði með tilheyrandi meðlæti að launum.

Búningar krakkanna eru margvíslegir að vanda, margir mjög glæsilegir og söngurinn ekki síðri. Starfsmenn Norðlenska skemmta sér alltaf konunglega á öskudaginn og taka vel á móti gestum sínum. Til hamingju með daginn, krakkar!


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook