Fréttir

Ungir bændur gagnrýna prófessorinn

Samtök ungra bænda skora á rektor Háskóla Ísland að beita sér fyrir faglegum vinnubrögðum og málefnalegum málflutningi starfsfólks háskólans í almennri fjölmiðlaumræðu hér á landi. Samtökin gagnrýna Þórólf Matthíasson deildarforseta hagfræðideildar HÍ.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi í Samtökum ungra bænda, mánudaginn 8. ágúst.

„Á undanförnum misserum hefur Þórólfur Mattíasson deildarforseti hagfræðideildar HÍ farið mikinn í fjölmiðlum í tengslum um sauðfjárrækt sem atvinnugrein í heild sinni. Í skrifum og orðræðu deildarforsetans hefur hann farið rangt með staðreyndir og verður  þekking hans á málefninu að teljast fullkomlega yfirborðskennd. Lýsa Samtök ungra bænda jafnframt undrun sinni á því að hagfræðiprófessorinn skuli ekki hafa aflað sér betri upplýsinga um fyrirkomulag sauðfjárframleiðslu á Íslandi áður en hann tók að fjalla um atvinnugreinina á vettvangi fjölmiðla.

Háskóli Íslands er virt mennta og fræðastofnun sem nýtur trausts í samfélaginu og ber mikla samfélagslega ábyrgð sem slík.  Því er eðlileg krafa hins almenna skattgreiðanda að þeir sem gegna ábyrgðarstöðum við stofnunina láti fagmennsku ávalt vera í fyrirrúmi í umfjöllun sinni um málefni á opinberum vettvangi og setji hvorki fram tilhæfulausar staðhæfingar né heldur blandi pólitískum skoðunum sínum á óskyldum málefnum inn í umræðuna.”


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook