Sauðfjárafurðir: Hækkað verð og bætt greiðslukjör
Nú hafa verðskrár stærstu sláturleyfishafa verið birtar. Norðlenska hefur ákveðið að hækka verð nokkurra flokka, þannig að fyrirtækið greiði sambærilegt verð og aðrir sláturleyfishafar. Ný verðskrá er afturvirk og mun Norðlenska leiðrétta innlegg sem þegar hefur verið greitt.
Norðlenska greiðir innlegg fyrr
Norðlenska hefur einnig ákveðið að breyta greiðslufyrirkomulagi og greiða fyrir allt innlegg föstudaginn í viku eftir innlegg. Hér er um breytingu að ræða frá því í fyrra.
Verðskrá er sem hér segir:
F I T U F L O K K A R
Holdfylling 1 2 3 3+ 4 5
DE 401 401 395 351 266 246
DU 399 402 385 350 265 241
DR 368 381 359 300 241 234
DO 324 366 316 290 235 232
DP 289 289 265 265 216 209
VP 209
VR 291 250
VHR 64 52
VHP 52
FP 42
FR 105 48
Birt með fyrirvara um prentvillur.