Fréttir

Ekki bara „bestu bitarnir“ úr landi

Í þessari viku flytur Norðlenska út þrjá gáma af lamba- og kindaafurðum. Gaman er að vekja athygli á þessu, í ljósi umræðunnar upp á síðkastið um að einungis „bestu bitarnir“ séu fluttir utan en megninu af því sem nú er á leið út hefði verið fargað fyrir fáeinum árum.

Undanfarin ár hefur verið unnið að því að koma ýmsum aukaafurðum á markað erlendis og síðustu misseri töluvert verið selt úr landi. Nú verða send utan 12 tonn af lamba- og kindafitu, 9 tonn af lamba- og kindaslögum, 25 tonn af beinum og 25 tonn af mör. Fyrir nokkrum árum hefði öllu þessu þurft að farga nema slögunum.

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook