Fréttir

Endurnýjaður samningur um Goðamótin til næstu þriggja ára

Í kvöld skrifuðu Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, og Sigurjón Magnússon, fyrir hönd Íþróttafélagsins Þórs, undir samning um áframhaldandi samstarf Norðlenska og Þórs um Goðamótin í knattspyrnu. Samningurinn er til næstu þriggja ára og tekur gildi frá og með næsta vetri.

Nú stendur yfir í Boganum á Akureyri Goðamót Þórs í 6. aldursflokki drengja og er þetta þriðja og síðasta Goðamót vetrarins. Núgildandi samningur milli Norðlenska og Þórs um Goðamótin rennur út að þessu móti loknu og samningurinn í kvöld er því framhald á núverandi samstarfi, sem hefur staðið undanfarin sex ár, en frá árinu 2003 hefur Íþróttafélagið Þór haldið Goðamótin. Um er að ræða mót í 5. aldursflokki drengja, 6. aldursflokki drengja og 4. og 5. aldursflokki kvenna.

Á hverju Goðamóti taka þátt á bilinu 450 til 500 þátttakendur, auk fjölda þjálfara, fararstjóra og foreldra. Skjóta má á að við framkvæmd hvers móts vinni sem næst eitthundrað sjálfboðaliðar.

Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, sagði við undirskrift samningsins í kvöld að það skipti fyrirtækið miklu máli að koma að Goðamótunum.  "Við leggjum áherslu á að koma að samfélagslegum verkefnum á þeim stöðum þar sem við störfum og Goðamótin eru stærsta einstaka verkefnið sem við tökum þátt í.  Það er ljóst að okkar helsta vörumerki, Goði, er oftast nefnt í tengslum við þessi mót. Okkur er það sönn ánægja að framlengja þetta samstarf til næstu þriggja ára," sagði Ingvar.

Sigurjón Magnússon, talsmaður Goðamótanna, segir það skipta Íþróttafélagið Þór gríðarlega miklu máli að eiga þetta farsæla samstarf við Norðlenska um framkvæmd Goðamótanna. "Norðlenska hafði trú á þessari hugmynd í upphafi og síðan hafa mótin vaxið og dafnað. Samstarf okkar við fyrirtækið hefur frá upphafi verið einstaklega gott og ég vil að forráðamenn Norðlenska viti hversu gríðarlega mikils við metum þetta samstarf. Ég fagna þessum nýja samningi og vona að við eigum samstarf við Norðlenska um Goðamótin um ókomna tíð."

 godaundirskrift_640

 


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook