Fréttir

Fjölmenni á Norðurland 2005

Norðlenska tók þátt í sýningunni Norðurland 2005 um liðna helgi og kynnti þar framleiðsluvörur sínar. Margmenni sótti sýninguna og bás Norðlenska var oftar en ekki fjölmennur þar sem gestir fengu að smakka á nokkrum af vörum fyrirtækisins. Á meðan sýningunni stóð gafst gestum kostur á að giska á fjölda pylsupakka í Goða kælikistunni.Norðlenska tók þátt í sýningunni Norðurland 2005 um liðna helgi og kynnti þar framleiðsluvörur sínar.  Margmenni sótti sýninguna og bás Norðlenska var oftar en ekki fjölmennur þar sem gestir fengu að smakka á nokkrum af vörum fyrirtækisins.  Á meðan sýningunni stóð gafst gestum kostur á að giska á fjölda pylsupakka í Goða kælikistunni.
     Um 600 manns tóku þátt í getrauninni en engum þeirra tókst að geta til um rétta tölu en pylsupakkarnir voru 161.  Þrír komust eins nálægt og hægt er  og giskuðu á 160 og 162.  Dregið var um vinningshafann og var það ung stúlka úr Reykjavík sem  hafði sigur og hlýtur að launum grillveislu fyrir  tíu manns.  Tveir ungir Akureyringar hljóta síðan grillveislur fyrir fimm manns.  Norðlenska þakkar öllum þátttöku í leiknum.

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook