Fréttir

Flottir í tauinu á Húsavík

Sú skemmtilega hefð hefur skapast hjá Norðlenska á Húsavík að allir karlmenn mæta til vinnu með hálsbindi síðustu vikuna fyrir jól. Að sjálfsögðu var ekkert gefið eftir í því efni að þessu sinni og á myndinni eru verkstjórarnir Arnar Guðmundsson og Róbert Ragnar Skarphéðinsson sem sýndu gott fordæmi.

Konurnar hjá Norðlenska á Húsavík láta ekki sitt eftir liggja og setja upp jólasveinahúfur í kaffi- og matartímum. Þær eru hins vegar teknar niður áður en haldið er til starfa á ný, því slíkur höfuðbúnaður þykir ekki hentugur í vinnsusal!

 


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook