Fréttabréf Norðlenska Júní 2005 - Verðhækkun á lambakjöti
Fréttabréf Norðlenska er komið út. Í því eru birtar verðtöflur vegna sauðfjárslátrunar 2005, ber þar hæst að verðskrá fyrir lambakjöt hefur hækkað um 11% frá síðasta ári og útflutningsskylda hefur lækkað úr 36% í 18%. Samkvæmt útreikningum Landssamtaka sauðfjárbænda þýðir það u.þ.b. 21% heildarhækkun á skilaverði til bænda.
Stefnt er að því að sumarslátrun hefjist á tímabilinu 8-12 ágúst en haustslátrun hefjist hjá Norðlenska 5 september. Fréttabréfið má finna í heild sinni á heimasíðu Norðlenska undir Bændur/fréttabréf eða smella hér á linkinn http://www.nordlenska.is/skrar/flokkur_72/nordlenskra0605.pdf