Fréttir

Fundum með félagsmönnum í Búsæld á Suður- og Austurlandi frestað vegna óveðurs og ófærðar

Fyrirhuguðum fundum forráðamanna Búsældar og Norðlenska með félagsmönnum í Búsæld, sem áttu að vera á Suður- og Austurlandi í dag og á morgun, hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna óveðurs og ófærðar.

Veður er ennþá slæmt á bæði Suðurlandsundirlendinu og Austurlandi og sömuleiðis er víða ófært og því er, að sögn Sigmundar E. Ófeigssonar, framkvæmdastjóra Norðlenska, einboðið að fresta fyrirhuguðum fundum í dag og á morgun með félögum í Búsæld á Suður- og Austurlandi. Sigmundur segir að fundirnir verði haldnir síðar, en ekki er búið að ákveða hvenær það verður unnt. Það verður þó nær örugglega ekki fyrr en eftir páska.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook