Fréttir

Gengið ótrúlega vel - MYNDBANDSVIÐTAL

Halldór og Ásvaldur í réttinni í gær.
Halldór og Ásvaldur í réttinni í gær.

Halldór Sigurðsson, réttarstjóri Norðlenska á Húsavík og bóndi á Syðri-Sandhóli á Tjörnesi, segir sláturtíðina hafa gengið ótrúlega vel. Hann segir fé vænt í ár og Ásvaldur Þormóðsson, bóndi á Stórutjörnum í Ljósavatnsskarði, er líka ánægður. Hann kom með fé til slátrunar á Húsavík í dag.

 

Halldór hrósaði bændum fyrir gott samstarf. Vegna áfallsins um daginn þegar fé fennti hefði þurft að breyta niðurröðun á slátrun dálítið, en það hefði ekki verið neitt vandamál.

 
 

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook