Goðamót Þórs - Frábær skemmtun
01.03.2004 - Lestrar 52
Um helgina fór fram Goðamót Þórs í 3-5 aldursflokki stúlkna. Mótið er það fyrsta af þremur sem haldið er í samvinnu við Þór og með stuðningi Norðlenska. Mótið þótti takast afburða vel og skemmtu allir sér frábærlega. Þátttakendur fengu allir gjafir frá Norðlenska, Goða pylsur, áleggsbréf og Áfram Ísland trefil. Um helgina fór fram Goðamót Þórs í 3-5 aldursflokki stúlkna. Mótið er það fyrsta af þremur sem haldið er í samvinnu við Þór og með stuðningi Norðlenska. Mótið þótti takast afburða vel og skemmtu allir sér frábærlega. Þátttakendur fengu allir gjafir frá Norðlenska, Goða pylsur, áleggsbréf og Áfram Ísland trefil. Á mótinu voru skoruð 462 mörk í 96 leikjum. Myndir frá mótinu má sjá á heimasíðu mótsins.