Fréttir

Goði og Pollapönk grilla saman

Hljómsveitin Pollapönk sendir frá sér lagið Ættarmót á næstu dögum, það fyrsta af plötu sem væntanleg er frá sveitinni í haust. Af því tilefni var tekið upp myndband við lagið í gær, og farin óvenjuleg leið því strákarnir fengu Goða til samstarfs og slegið var upp óvæntu götugrilli við Sunnuveg í Hafnarfirði.

Ákveðið var að slá tvær flugur í einu höggi og taka upp myndband og sjónvarpsauglýsingu á sama tíma.

Ákveðið var að gera þetta alveg óvænt fyrir alla í götunni og vissi fólk ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar menn mættu með myndavélar, verkfæri, hljóðkerfi, borð, stóla, grill, dúka, kokka og þjóna í götuna um klukkan 18.00 í gær, eins og segir í frétt á Vísi.

Uppátækinu  var vel tekið og allir skemmtu sér vel við tóna Pollapönks undir leikstjórn Gunnars Helgasonar sem leikstýrir bæði myndbandinu og auglýsingunni.

Eðalkokkurinn að norðan, Friðrik V, mætti á staðinn og eldaði ofan í alla ásamt því að taka einn íbúann í læri við eldamennskuna.

Goði mun svo efna til leiks í sumar þar sem í vinninga verður m.a. veisla sem þessi fyrir heppna íbúa einhverrar götu. Það sannaðist á tökustað að það er fátt sem getur sameinað nágranna eins vel og gott götugrill!

Hér má sjá fullt af myndum frá grillveislunni: http://visir.is/ALBUM/20110520/LIFID01/520009997

Og hér má sjá fréttina á Vísi:

http://www.visir.is/vid-erum-ad-tala-um-almennilegt-party/article/2011110529958


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook