Fréttir

Gullneminn Grétar

Grétar Þór Björnsson nemi hjá Norðlenska á Húsavík, sigraði í nemakeppni kjötiðnaðarmanna sem haldin var á Íslandsmóti iðn- og verkgreina í Smáralind í Kópavogi á dögunum, eins og greint var frá á heimasíðunni í síðustu viku. Hér er komin mynd af kappanum þannig að allir gull-drengir fyrirtækisins á mótinu eru þar með sýnilegir!

Nemakeppnin fer þannig fram að hver keppandi fær einn lambskrokk, á að vinna hann og gera kláran í kjötborð. Keppnin er mjög krefjandi, því áhorfendur geta fylgst með nemunum að störfum.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook