Fréttir

Færðu Hetjunum 184 þúsund krónur

Haldið var starfsmannabingó hjá Norðlenska nýverið, til styrktar Hetjunum, félagi langveikra barna á Akureyri og nágrenni. Alls söfnuðust 184 þúsund krónur, sem Eggert Sigmundsson vinnslustjóri Norðlenska afhenti fyrir helgi og það var Júlíus Freyr Gunnarsson, ein Hetjanna, sem tók við peningunum í húsnæði Norðlenska.

Á myndinni eru, frá vinstri, Eggert Sigmundsson, Lilja Dögg Vilbergsdóttir, sem er í stjórn Hetjanna og móðir Júlíusar Freys, þá Júlíus Freyr Gunnarsson sem tók við peningagjöfinni og hægra megin eru Unnur Sigrún Jónsdóttir og Linda Björk Þorsteinsdóttir, þeir starfsmenn Norðlenska sem báru hitann og þungann af bingóinu.

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook