Fréttir

Jóna Jónsdóttir hefur verið ráðin starfsmannastjóri Norðlenska

Jóna Jónsdóttir.
Jóna Jónsdóttir.
Jóna Jónsdóttir hefur verið ráðin í stöðu starfsmannastjóra Norðlenska og mun hún hefja störf í maí nk. Jóna er með M.A. próf í mannauðsstjórnun frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og B.S.-próf í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri.

Hún hefur starfað hjá Háskólanum á Akureyri frá 2001, nú síðast sem forstöðumaður markaðs- og kynningarsviðs.

Jóna tekur við starfi starfsmannastjóra af Katrínu Dóru Þorsteinsdóttur, sem hefur gegnt því undanfarin þrjú ár.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook