KEA-hamborgarhryggurinn sá besti á markaðnum - að mati matgæðinga DV!
16.12.2008 - Lestrar 827
Matgæðingar DV velja KEA-hamborgarhrygginn þann besta á markaðnum. Hryggurinn fékk 3,3 stjörnur af 5 mögulegum í árlegri
úttekt á hamborgarhryggjunum á markaðnum.
Niðurstöður þessarar úttektar eru birtar í DV í dag og eins og í úttekt á jólahangikjötinu, sem var birt í gær,
lögðu fimm einstaklingar mat sitt á hamborgarhryggina; matreiðslumeistarinn Siggi Hall, landsliðskokkurinn og eigandi Fiskmarkaðarins Hrefna Rós
Jóhannesdóttir Sætran, Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslumeistari á Gestgjafanum, Sólveig Baldursdóttir, ritstjóri Gestgjafans og
Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins og alþingismaður.
Þar með er ljóst að matgæðingar þessa lands hafa valið besta hangikjötið og besta hamborgarhrygginn í ár frá Norðlenska - sem sagt tvöfaldur sigur! "Þetta er mikil viðurkenning fyrir Norðlenska enda hafa gæði og góð framleiðsla verið í öndvegi hjá fyrirtækinu. Eins og kunnugt er sigraði Húsavíkurhangikjötið í sambærilegri könnun DV fyrir hangikjöt í gær þannig að því er óhætt að segja að fagmenn Norðlenska séu hinir sönnu siguvegarar um þessi jól," segir Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska.