Fréttir

KEA og Norðlenska leggja Hjálparstarfi kirkjunnar lið

Í dag, mánudaginn 20. desember, afhentu forsvarsmenn KEA og Norðlenska, Hjálparstarfi kirkjunnar á Akureyri áttatíu matarpoka, sem verður dreift til skjólstæðinga Hjálparstarfs kirkjunnar í Eyjafirði og á Húsavík núna fyrir jólin. Í hverjum poka er hamborgarhryggur frá Norðlenska ásamt meðlæti.

Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, og Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, segja að með þessum gjöfum vilji KEA og Norðlenska létta undir með því fólki sem þurfi á aðstoð að halda fyrir jólin. Ingvar Már segir að Norðlenska leggi fleiri félagasamtökum lið á einn eða annan hátt, t.d. Mæðrastyrksnefnd.

Jón Oddgeir Guðmundsson, sem veitti matarpokunum viðtöku fyrir hönd Hjálparstarfs kirkjunnar á Akureyri, segir að sem fyrr sé mikil þörf fyrir aðstoð Hjálparstofnunar og þetta framlag KEA og Norðlenska komi því sannarlega í góðar þarfir. Jón Oddgeir segir að um 50 aðilar í Eyjafirði og á Húsavík leiti eftir aðstoð frá Hjálparstarfi kirkjunnar og til viðbótar muni stofnunin hafa samband við einstaklinga sem hún telur hjálpar þurfi og bjóða fram aðstoð sína.

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook