Fréttir

KEA og Norðlenska leggja Hjálparstarfi kirkjunnar lið

Ingibjörg Stefánsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi KEA, og Jón Oddgeir Guðmundsson frá Hjálparstarfi kirkjunnar með hluta af matarpokunum, en í hverjum poka er KEA-hamborgarhryggur frá Norðlenska og meðlæti.
Ingibjörg Stefánsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi KEA, og Jón Oddgeir Guðmundsson frá Hjálparstarfi kirkjunnar með hluta af matarpokunum, en í hverjum poka er KEA-hamborgarhryggur frá Norðlenska og meðlæti.
KEA í samstarfi við Norðlenska hefur fært Hjálparstarfi kirkjunnar að gjöf 70 matarpoka, sem eru núna í aðdraganda jólanna afhentir skjólstæðingum Hjálparstarfsins. Þetta er annað árið í röð sem KEA og Norðlenska leggja Hjálparstarfi kirkjunnar lið með þessum hætti, en í hverjum matarpoka er KEA-hamborgarhryggur frá Norðlenska og meðlæti.

KEA í samstarfi við Norðlenska hefur fært Hjálparstarfi kirkjunnar að gjöf 70 matarpoka, sem eru núna í aðdraganda jólanna afhentir skjólstæðingum Hjálparstarfsins.  

Þetta er annað árið í röð sem KEA og Norðlenska leggja Hjálparstarfi kirkjunnar lið með þessum hætti, en í hverjum matarpoka er KEA-hamborgarhryggur frá Norðlenska og meðlæti.

Jón Oddgeir Guðmundsson hefur undanfarin tólf ár starfað á Akureyri fyrir Hjálparstarf kirkjunnar og segir hann að þörfin fyrir aðstoð í aðdraganda jólanna hafi aukist ár frá ári. Fyrir síðustu jól hafi hátt í 70 aðilar leitað aðstoðar Hjálparstarfsins og hann á von á því að svipaður fjöldi einstaklinga og fjölskyldna leiti aðstoðar í ár, en aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar tekur til Eyjafjarðarsvæðisins og Þingeyjarsýslna.

Úthlutun Hjálparstarfs kirkjunnar hófst 16. desember sl. í Glerárkirkju á Akureyri og stendur til 22. desember. Beiðnir um aðstoð berast prestum á Eyjafjarðarsvæðinu og í Þingeyjarsýslum og þeir vísa þeim síðan til Hjálparstarfs kirkjunnar.

Fyrir marga eru það ákaflega þung spor að leita aðstoðar, segir Jón Oddgeir og er afar þakklátur fyrir þann stuðning sem KEA og Norðlenska hafi sýnt Hjálparstarfi kirkjunnar með þessum hætti.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook