Fréttir

Kjötfars í rúmlega 100.000 bollur!

Sala á kjötfarsi er margföld á bolludegi miðað við aðra daga ársins. Starfsmenn Norðlenska unnu í gær við afgreiðslu á farsi sem sent var til Reykjavíkur og fjölda annarra staða út um land. Eggert H. Sigmundsson vinnslustjóri Norðlenska segir það magn af kjötfarsi sem fyrirtækið framleiðir ætti að duga í rúmlega eitt hundrað þúsund bollur.

Það er sem sagt ekki bara sprengidagurinn sem starfsfólk Norðlenska einbeitir sér sérstaklega að í þessari viku. „Við seljum þrjár gerðir af farsi; venjulegt kjötfars, saltkjötfars og sælkerafars, en einnig er mikil sala af forsteiktum kjöbollum á bolludaginn,” segir Eggert H. Sigmundsson. Unnið var í gær til þess að varan sé sem ferskust þegar hún kemur til viðskiptavinanna.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook