Kokkur/matráður í mötuneyti Norðlenska á Akureyri
Framundan eru breytingar á húsnæði mötuneytis Norðlenska á Akureyri og áherslum. Óskað er eftir öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að takast á við skemmtilegt mótunarstarf. Helstu verkefni eru stefnumótun, ábyrgð á innkaupum, eldamennska og framreiðsla. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf um miðjan mars.
Hæfniskröfur:
· Menntun og/eða reynsla á sviði matreiðslu
· Áhugi á matseld og vilji til að prófa nýjungar
· Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
· Góð samskiptahæfni, jákvæðni og fagleg framkoma
Nánari upplýsingar veitir Eggert H. Sigmundsson, vinnslustjóri í síma 840 8858 eða netfang: eggerts@nordlenska.is . Áhugasamir eru hvattir til að sækja um með tölvupósti til Jónu starfsmannastjóra, netfang: jona@nordlenska.is .
Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2013. Öllum umsækjendum verður svarað.