Laus störf hjá Norðlenska
Nokkur störf eru laus til umsóknar hjá Norðlenska. Áhugasömum er nú boðið uppá að sækja um störfin hér á vefsíðunni. Eina sem þarf að gera er að smella á atvinnuumsóknir og þá birtast annars vegar umsóknareyðublöð fyrir almennar atvinnuumsóknir og hins vegar eyðublað fyrir störf í sláturtíð. Umbeðnar upplýsingar eru skráðar inn og eyðublöðin send. Öllum umsóknum er svarað.
Laus eru, sumarstarf í vöruafgreiðslu Norðlenska á Akureyri, framtíðarstörf í kjötvinnslu Norðlenska á Húsavík ásamt störfum í sláturtíð hjá Norðlenska á Húsavík. Að auki eru í boði tvær stöður kjötiðnaðarnema hjá Norðlenska.