Fréttir

Matarstemning í göngugötunni

Félagið Matur úr héraði stóð fyrir skemmtilegri uppákomu í göngugötunni á Akureyri í dag - sannkallaðri matarstemmningu í tilefni af því að nú kveður veturinn og sumarið heilsar.

Öllum sem leið áttu um var boðið að gæða sér á eyfirskum úrvalsvörum, kjötmeti af grillunum, fiskisúpu, saltfiskbollum, ís og svaladrykk og skapaðist góð stemmning. Margir gestanna voru stuttu komnir í bæinn í tilefni af Andrésar Andar leikunum og höfðu á orði að það væru ekki dónalegar móttökurnar á Akureyri, frekar en fyrri daginn. Norðlenska bauð að sjálfsögðu upp á grillpinna í samstarfi við grillþjónustu Bautans.

nordlenska_3__minni_640

nordlenska_2__minni_640

nordlenska_1__minni_640


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook