Fréttir

Nánast allt uppselt!

Lagerinn á Húsavík í dag!
Lagerinn á Húsavík í dag!

Mikið hefur verið að gera hjá starfsfólki Norðlenska síðustu daga. Hér er allt orðið tómt! Það má með sanni segja að allt sé uppselt hjá framleiðanda en að sjálfsögðu er nokkurt magn af kjöti til í verslunum,“ sagði Ingvar Már Gíslason markaðsstjóri Norðlenska í dag, spurður um jólavertíðina.

Það hefur allt gengið eins og í sögu og við erum mjög ánægð með þær viðtökur sem við höfum fengið hjá neytendum. KEA hangikjötið hefur aldrei verið vinsælla og KEA hamborgarhryggurinn hefur selst gríðarlega vel, sérstaklega eftir bragðkönnun DV á dögunum. Þá er gaman að sjá hversu mikil ásókn er í sagaða hangiframparta og tvíreykt hangikjöt,“ sagði Ingvar í dag.

Við erum þó hvað ánægðust með okkar starfsfólk sem hefur hreint út sagt staðið sig gríðarlega vel undir mikilli pressu. Það væri ekki hægt að framleiða og halda gæðum í lagi nema fyrir það frábæra starfsfólk sem hjá Norðlenska starfar,“ sagði Ingvar Már Gíslason.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook