Nemar í kjötiðn
04.05.2012 - Lestrar 384
Norðlenska óskar eftir að ráða kjötiðnaðarnema á samning í kjötvinnslu fyrirtækisins á Akureyri. Reynslutími áður en nemi er tekinn á samning eru þrír mánuðir.
Hæfniskröfur:
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni og fagleg framkoma.
- Góð tölvu- og íslenskukunnátta.
Nemar læra undir handleiðslu reyndra kjötiðnaðarmeistara. Frekari upplýsingar veitir Jóna
Jónsdóttir starfsmannastjóri í síma 460 8805 eða netfang jona@nordlenska.is . Hægt er að sækja um á
www.nordlenska.is/atvinna