Fréttir

Björguðu lífi Sigurðar

Tveir starfsmenn Norðlenska, Grétar Guðmundsson og Steingrímur Stefánsson, björguðu vinnufélaga sínum Sigurði Samúelssyni þegar hann fór í hjartastopp sl. haust og hlutu fyrir það afrek viðurkenningu frá Rauða krossinum í tilefni 112 dagsins, sem var í gær.

Í frétt á heimasíðu Rauða krossins á Akureyri segir:

Sigurður var við vinnu sem verkstjóri í sauðfjársláturtíð á Húsavík 5. október 2012 þegar hann fór í hjartastopp og féll í gólfið. Grétar heyrði skyndilega öskur í vinnusalnum og gerði sér strax grein fyrir því að eitthvað var að gerast. Hann hleypur á vettvang og sér þá Sigurð liggjandi á gólfinu, og að hann er farinn að blána. Grétar byrjar strax endurlífgun með hjartahnoði ásamt vinnufélaga sínum Steingrími S. Stefánssyni. Á meðan á endurlífguninni stendur virðist Sigurður detta inn annað slagið.

Aðstæður á vettvangi voru mjög erfiðar vegna þrengsla og bleytu en þeir Grétar og Steingrímur héldu áfram að hnoða þar til hjálp barst frá lögreglu og sjúkraliði. Sigurði voru svo gefin tvö hjartastuð, og komst fljótlega í gang aftur. Grétar gekk svo í það að rýma til á vettvangi, færa til skrokka og biðja fólk að víkja, svo bera mætti Sigurð út af staðnum í sjúkrabílinn. Óhætt er að segja að þeir félagar björguðu lífi Sigurðar með viðbrögðum sínum.

Á myndinni eru, frá vinstri, Guðný Bergvinsdóttir frá Rauða krossinum, vinnufélagarnir Grétar, Steingrímur Sigurður, og Jón Knutsen frá Rauða krossinum.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook