Verðlagning sauðfjárafurða haustið 2009
Verðlagning sauðfjárafurða þetta haustið er ákvörðuð í skugga erfiðra aðstæðna í þjóðfélaginu. Allur almenningur sem og atvinnurekstur býr við miklar aðfangahækkanir, minnkandi kaupmátt og erfitt rekstrarumhverfi.
Bændur hafa ekki farið varhluta af þessu, frekar en aðrir landmenn. Það er því vandasamt að verðleggja sauðfjárafurðir því allir bændur hafa þörf fyrir hækkun á sínum afurðum, en á sama tíma hafa yfir 30% launamanna orðið fyrir tekjuskerðingu auk þess sem kaupmáttur launa hefur minnkað verulega. Kaupgeta íslenskra heimila hefur því minnkað verulega og þarf því að huga sérstaklega að því að verðleggja ekki vörur út af markaði. Minnkandi kaupgeta hefur valdið því að verulegur samdráttur hefur orðið í sölu kjöts innanlands, sérstaklega hefur þetta verið alvarlegt nú síðustu fjóra mánuði. Þessi sölusamdráttur hefur bitnað hvað harðast á lambakjöti.Þrátt fyrir minni innanlandssölu dilkakjöts hefur orðið aukning í útflutningi. Þar hefur lág skráning krónu gagnvart öðrum gjaldmiðlum vegið þyngst. Útflutningur dilkakjöts er vænlegri en áður, en þó ber þess að geta að miðað við sölusamdrátt innanlands stefnir í a.m.k. 2500 tonna útflutningsþörf, sem er um 1000 tonnum meiri útflutningur en fyrri ár. Auk þess verður að hafa í huga að það eru ekki bara vandamál í efnahagslífinu á Íslandi. Aðrar þjóðir berjast líka við kreppu. Það er því ekki alveg gefið að auðvelt sé að flytja þetta magn út á ásættanlegum verðum.
En það eru ekki bara efnahagsmálin sem hafa áhrif á verðlagningu sauðfjárafurða. Nýr búvörusamningur er breyttur, ekki er
lengur um útflutningsskyldu a
ð ræða og þá hafa geymslugjöld, sem gengið hafa til sláturleyfishafa, lækkað. Lækkun geymslugjalda vegur um 2,5% í
afurðaverði.
Af framangreindu er ljóst að óvarlegt er að hækka verð á innanlandsmarkaði, en sú hækkun sem ganga mun til bænda er hækkun á það sem áður var útflutningsverð. Fyrir bændur er þetta 9,4% hækkun á heildarverði dilkakjöts frá fyrra ári.
Norðlenska stefnir að útflutningi á rúmlega 30% sauðfjárframleiðslunnar, en það er mat okkar að útflutningsþörfin geti orðið meiri en það á næsta ári.
Verðskrár Norðlenska fyrir sauðfjárafurðir haustið 2009 er því eftirfarandi:
Annars vegar er um að ræða verðskrá fyrir innleggjendur sem eru með viðskiptasamninga við Norðlenska og hins vegar innleggjendur sem ekki eru með viðskiptasamninga við fyrirtækið.
Efri taflan hér að neðan (einnig í pdf-skjali) sýnir verðskrá fyrir innleggjendur sem eru með viðskiptasamninga við Norðlenska. Þar sem útflutningsskylda er ekki lengur við lýði, þá er greitt sama verð fyrir allt sauðfé. Neðri taflan hér að neðan (ennig í pdf-skjali) sýnir verðskrá fyrir innleggjendur sem ekki eru með viðskiptasamninga við Norðlenska.
Ný verðskrá er afturvirk fyrir sauðfjárslátrun Norðlenska í ágúst sl.
Verðskráin miðast við að sama fyrirkomulag verði á geymslugjöldum og áður.
Greiðsluskilmálar:
Norðlenska mun greiða að fullu fyrir innlegg á föstudegi eftir innleggsviku.
Verðskrá sauðfjárafurða haustið 2009 (pdf)
Verðlisti til þeirra sem eru með viðskiptasamning við Norðlenska
F I T U F L O K K A R
Holdfylling 1
2 3
3+ 4 5
DE 477
477 470 418
317 292
DU
474 478 456
417 316 287
DR 438
453 433 358
287 278
DO 386
436 376 344
279 275
DP
342 342
314 314 256 248
VP 248
VR
330 280
VHR
75 55
VHP 60
FP 49
FR
110 54
Birt með fyrirvara um prentvillur
Verðlisti til þeirra sem ekki eru með viðskiptasamning við Norðlenska
F I T U F L O K K A R
Holdfylling 1
2 3
3+ 4 5
DE 458
458 451 401
304 280
DU
455 459
438 400 303 276
DR 420
435 416 344
276 267
DO
371 419 361
330 268 264
DP 328
328 301
301 246 238
VP 238
VR
317 269
VHR 72
53
VHP 58
FP 47
FR
106 52
Birt með fyrirvara um prentvillur