Fréttir

Vörur Norðlenska skipa stóran sess

„Við erum mjög ánægðir með það hve vel landsmenn hafa tekið vörunum frá Norðlenska fyrir jólin. Þrátt fyrir mikla samkeppni á þessum markaði er hlutdeild okkar rótgrónu vöru að aukast - KEA hangikjötið, Húsavíkurhangikjötið og KEA hamborgarhryggurinn skipa greinilega stóran sess í huga landsmanna,” segir Ingvar Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska.

„Salan var mjög mikil í verslunum um helgina og í gær, og nú erum við á síðustu metrunum. Þessari miklu törn lýkur í dag enda eins gott því nánast allt okkar jólakjöt er að verða búið!” sagði Ingvar í morgun.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook