Fréttir

Norðlenska: 171 milljóna kr. hagnaður á árinu 2010

Sigmundur Einar Ófeigsson framkvæmdastjóri.
Sigmundur Einar Ófeigsson framkvæmdastjóri.

Árið 2010 var Norðlenska nokkuð hagfellt. Ársvelta félagsins var 4.120 milljónir króna og jókst um 11% á milli ára. Hagnaður ársins var 171 milljón króna og eigið fé er orðið jákvætt um 95 milljónir króna en var neikvætt í byrjun ársins. Skuldastaða félagsins hefur batnað verulega og hafa vaxtaberandi skuldir lækkað um 687 milljónir króna á milli ára sem gerir fyrirtækið mun rekstrarhæfara en áður. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins í dag.

 

 

 

 

Norðlenska matborðið ehf. sendi út fréttatilkynningu eftir aðalfund félagsins sem haldinn var á Akureyri í dag. Hér má sjá fréttatilkynninguna í heild:

  • Hagnaður ársins var 171 milljón kr., en 78 milljóna kr. tap á rekstrinum árið áður
  • Ársveltan voru rúmar 4.120 milljónir kr., og jókst um 11% á milli ára
  • EBIDTA hagnaður ársins var 214,5 milljónir kr. samanborið við 208 milljónir kr. 2009
  • Heildar eignir Norðlenska voru í árslok 2.178 milljónir króna.
  • Eigið fé í árslok var 95 milljónir kr. en var neikvætt um 76 milljónir í lok árs 2009
  • Vaxtaberandi skuldir hafa lækkað um 687 milljónir kr. á milli ára
  • Veltufjárhlutfall var í árslok 1,29

Árið 2010 var Norðlenska nokkuð hagfellt. Ársvelta félagsins var 4.120 milljónir kr. og jókst um 11% á milli ára. Hagnaður ársins var 171 milljón kr. og eigið fé er orðið jákvætt um 95 milljónir kr. en var neikvætt í byrjun ársins. Skuldastaða félagsins hefur batnað verulega og hafa vaxtaberandi skuldir lækkað um 687 milljónir kr. á milli ára sem gerir fyrirtækið mun rekstrarhæfara en áður. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins í dag.

Hagnaður ársins var til kominn vegna leiðréttra, erlendra lána og lækkandi vaxtastigs í landinu auk hagræðingar í rekstri. Gætt hefur verið mikils aðhalds og tekið á flestum rekstrarliðum og fyrirtækið er nú á góðri siglingu út úr kreppunni. „Mikilvægast er að hlúa að fyrirtækinu og halda áfram að styrkja innviði þess," segir í skýrslu stjórnar.

Að sögn Sigmundar Ófeigssonar, framkvæmdastjóra Norðlenska var árið erfitt framan af, en er á það leið varð meira jafnvægi í rekstrinum. Útflutningsmarkaðir löguðust umtalsvert seinnihluta árs auk þess sem veik króna styrkti afkomu útflutnings. Verð fyrir útflutt kjöt hækkaði verulega m.a vegna skorts á lambakjöti á erlendum mörkuðum. „Þetta hafði í för með sér hærra skilaverð á útfluttu kjöti sem og möguleika á auknum útflutningi sem skapaði meira jafnvægi á heimamarkaði. Félagið er þó mjög viðkvæmt fyrir sveiflum í krónunni eins og önnur fyrirtæki sem flytja út vörur," sagði Sigmundur.

Hagnaður Norðlenska árið 2010 var 171 milljón kr. á móti 78 milljóna kr. tapi árið 2009. EBITDA ársins varð 214 milljónir kr. en var 208 milljónir kr. árið áður.

Stjórn Norðlenska er skipuð eftirtöldum aðilum:

Heiðrún Jónsdóttir, Garðabæ, stjórnarformaður, Ingvi Stefánsson, Teigi, varaformaður,Geir Árdal, Dæli, ritari, Aðalsteinn Jónsson, Klausturseli, meðstjórnandi, Sigríður Elín Sigfúsdóttir, Reykjavík, meðstjórnandi.

Varamenn eru: Þórarinn Ingi Pétursson, Grýtubakka 1, Gróa Jóhannsdóttir, Hlíðarenda og Jón Benediktsson, Auðnum.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook