Fréttir

Norðlenska gengur vel

Umsvif Norðlenska hafa aukist umtalsvert síðastliðin tvö ár og er fyrirtækið orðið stærsti sláturleyfishafi landsins, að alifuglum frátöldum, með starfsstöðvar á Akureyri, Húsavík og Höfn á Hornafirði. Á liðnu ári slátraði Norðlenska um 3,820 tonnum, þar af 1.200 tonn grísakjöt, 800 tonn nautgripir og 1.820 tonn sauðfé en einnig voru keypti að um u.þ.b. 500 tonn sauðfé. Rekstur Norðlenska gekk vel á síðastliðnu ári og er mjög í takt við áætlanir. Útlit er fyrir að fyrirtækið verði rekið með hagnaði 2005.

Umsvif Norðlenska hafa aukist umtalsvert síðastliðin tvö ár og er fyrirtækið orðið stærsti sláturleyfishafi landsins, að alifuglum frátöldum, með starfsstöðvar á Akureyri, Húsavík og Höfn á Hornafirði.

Á liðnu ári slátraði Norðlenska um 3,820 tonnum, þar af 1.200 tonn grísakjöt, 800 tonn nautgripir og 1.820 tonn sauðfé en einnig voru keypti að um u.þ.b. 500 tonn sauðfé.

Rekstur Norðlenska gekk vel á síðastliðnu ári og er mjög í takt við áætlanir. Útlit er fyrir að fyrirtækið verði rekið með hagnaði 2005.

Sala Norðlenska á kjötafurðum var sú besta frá upphafi á síðastliðnu ári og ljóst að fyrirtækið þarf að slátra meira til að uppfylla þarfir markaðarins.

Á síðasta ári var gerður samningur um kaup á öllum afurðum Dalalambs og nú er vilji fyrirtækjanna að halda því samstarfi áfram og unnið að formlegum samning þar um. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á sláturhúsinu í Búðardal til að uppfylla kröfur um slátrun og meðferð sláturdýra og slátraði fyrirtækið u.þ.b 16 þúsund fjár á nýliðnu ári.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook