Fréttir

Norðlenska greiðir Búsæld 66 milljónir í arð - hagnaður ársins 291 milljón

Rekstur Norðlenska gekk vel árið 2011. Ársvelta félagsins var 4.548 milljónir króna og jókst um rúm 10% á milli ára. Hagnaður  ársins var 291 milljón króna og eigið fé Norðlenska er 386 milljónir króna. Á aðalfundi félagsins í gær var samþykkt að greiða eigandanum, Búsæld ehf., félagi 540 bænda, arð að upphæð 66 milljónum króna.

Norðlenska matborðið ehf. sendi í morgun út fréttatilkynningu í kjölfar aðalfundar félagsins sem haldinn var á Akureyri í gær. Hér má sjá fréttatilkynninguna í heild:

  • Hagnaður ársins var 291 milljón kr., en árið áður var 171 milljóna kr. hagnaður.
  • Ársveltan var rúmar 4.548 milljónir kr., og jókst um rúm 10% á milli ára.
  • EBIDTA hagnaður ársins var 388,3 milljónir kr. samanborið við 214,5 milljónir kr. 2010.
  • Heildar eignir Norðlenska voru í árslok  2.461 milljónir króna.
  • Eigið fé í árslok var 385,9 milljónir kr. en var 95 m.kr í lok árs 2010.
  • Vaxtaberandi skuldir hafa lækkað um 57,9 milljónir kr. á milli ára.
  • Veltufjárhlutfall var í árslok 1,36.


Rekstur Norðlenska gekk vel árið 2011. Ársvelta félagsins var 4.548 milljónir króna og jókst um rúm 10% á milli ára. Hagnaður  ársins var 291 milljón króna og eigið fé Norðlenska er nú 386 milljónir króna. Á aðalfundi félagsins í gær var samþykkt að greiða eigandanum, Búsæld ehf., félagi 540 bænda, arð að upphæð 66 milljónum króna.

Margir þættir lögðu grunninn að góðu uppgjöri félagsins.

Hagnaður ársins er m.a. til kominn vegna sterkrar stöðu á innanlandsmarkaði, en vörur og vörumerki Norðlenska njóta mjög mikilla vinsælda hjá neytendum. Einnig vegna þess að verð á erlendum mörkuðum var hærra en áður og sala úr landi meiri en hafði verið. Lækkandi vaxtastig í landinu skipti líka töluverðu máli sem og aukin hagræðing í rekstri. Markvisst hefur verið unnið að því að gæta aðhalds, og segja má að vinna síðustu ára við hagræðingu hafi skilað sér að fullu árið 2011. Fyrirtækið er nú í góðri stöðu.

Að sögn Sigmundar Ófeigssonar, framkvæmdastjóra Norðlenska, var reksturinn reyndar fremur erfiður framan af  ári, vegna ástands á innlandsmarkaði. Á sama tíma fékkst nokkuð gott verð fyrir kjöt erlendis,  það lækkaði stöðugt er á árið leið en þá styrktist innlandsmarkaðurinn mjög og Norðlenska jók markaðshlutdeild sína. Markaðir fyrir gærur og aukaafurðir voru mjög góðir á árinu, fyrirtækið hefur lagt aukna áherslu á að fullnýta sláturgripi, aukaafurðir eru allar fluttar út og skiluðu þau viðskipti góðum hagnaði.

Reksturinn var því góður þegar upp var staðið og þess vegna ákvað stjórn Norðlenska í dag að greiða Búsæld, eiganda fyrirtækisins, arð í fyrsta skipti. Áður hafði verið greidd uppbót fyrir innlagt kjöt ársins 2011 og alls nema því þessar aukagreiðslur til bænda um 100 milljónum króna.

Hagnaður Norðlenska árið 2011 var 291 milljón kr. á móti 171 milljóna kr. hagnaði árið áður.

EBITDA ársins varð 388,3 milljónir kr. en var 214,5 milljónir kr. árið áður.

Stjórn Norðlenska er skipuð eftirtöldum aðilum:

Heiðrún Jónsdóttir, Garðabæ, stjórnarformaður, Ingvi Stefánsson, Teigi, varaformaður, Geir Árdal, Dæli, ritari, Aðalsteinn Jónsson,  Klausturseli, meðstjórnandi, Sigríður Elín Sigfúsdóttir, Reykjavík, meðstjórnandi.

Varamenn eru: Óskar Gunnarsson, Dæli Skíðadal, Gróa Jóhannsdóttir, Hlíðarenda og Jón Benediktsson, Auðnum.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook