Fréttir

Norðlenska með í Meistaramánuðinum

Norðlenska tekur þátt í Meistaramánuðinum með leik á Facebook síðu fyrirtækisins. Nafn eins heppins þátttakanda er dregið út á hverjum fimmtudegi og viðkomandi fær dýrindis sunnudagssteik að launum. Fyrr í dag var einmitt dregið og upp úr pottinum kom nafn Kristrúnar Kristjánsdóttur.

„Okkur finnst þetta vera skemmtilegt verkefni og sáum okkur leik á borði að hvetja fólk til þess að setja sér markmið og lifa heilsusamlegu lífi. Við viljum leggja okkar að mörkum enda framleiðum við margar vörur á degi hverjum sem eru hollar og góðar. Íslenska lambakjötið er til dæmis frábær afurð eins og allir vita og þekkt á heimsvísu fyrir mikil gæði,“ segir Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook