Fréttir

Norðlenska styrkir Neistann

Afhending styrksins í dag.
Afhending styrksins í dag.
Í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina styrkir Norðlenska eins og undanfarin ár líknarfélag. Að þessu sinni styrkir Norðlenska Neistann - styrktarfélag hjartveikra barna á Norðurlandi um eitt hundrað þúsund krónur.

Á myndinni hér til hægri eru Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, og Aðalbjörn Leifsson og Júlíus Freyr Gunnarsson, sem báðir eru fjögurra ára, en þeir veittu styrknum viðtöku. 

Að sögn Ingvars Más Gíslasonar, markaðsstjóra Norðlenska, er þetta fjórða árið í röð sem fyrirtækið hefur þennan háttinn á fyrir jólin. Norðlenska hefur styrkt félagasamtök á þeim stöðum þar sem fyrirtækið hefur starfsemi. Árið 2005 var styrkurinn afhentur á Húsavík, í fyrra á Höfn í Hornafirði og nú er félag á Akureyri styrkt.
"Félag eins og Neistinn hefur mikilvægu hlutverki að gegna og vinnur afar gott starf. Vonandi munu þessir fjármunir nýtast félaginu vel," segir Ingvar Már Gíslason.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook