Reynir segir frá Iceland Byproducts á N4
08.10.2010 - Lestrar 676
Iceland Byproducts, fyrirtækið sem Norðlenska og SAH Afurðir á Blönduósi stofnuðu í sumar, var í brennidepli á sjónvarpsstöðinni N4 í gærkvöldi. Þar sagði Reynir B. Eiríksson frá fyrirtækinu og öðru spennandi sem er í gangi hjá Norðlenska.
Sagt var frá starfsemi hins nýja fyrirtækis, og samstarfinu við Irish Casings á Írlandi, hér á heimasíðunni í gær.
Viðtalið við Reyni, sem var í þættinum Að norðan á N4, má sjá hér í heild.