Fréttir

Rangar upplýsingar um verðskrá Norðlenska í Bændablaðinu - leiðrétting á vef Bændasamtakanna

Í nýjasta tölublaði Bændablaðsins er ranglega farið með nýjustu verðskrá Norðlenska, sem var birt hér á vefnum á dögunum. Vegna þessa birtir Erna Bjarnadóttir, sviðsstjóri hjá Bændasamtökunum, frétt á vef Bændasamtakanna í gær, 13. september, þar sem þessi mistök eru hörmuð og Norðlenska beðið velvirðingar á þeim. Orétt segir í frétt Ernu á vef Bændasamtakanna í gær, 13. september: "Þegar gengið var frá frétt í síðasta Bændablaði um verð á sauðfjárafurðum í haust urðu greinaskrifara á þau mistök að vitna ekki til nýjustu verðskrár Norðlenska sem gefin var út í byrjun síðustu viku. Norðlenska auglýsti þá ennfremur breytt greiðslukjör og greiðir nú fyrir allt innlegg föstudaginn í viku eftir innlegg. Nýja verðskráin er afturvirk og mun Norðlenska leiðrétta innlegg sem þegar hefur verið greitt. Norðlenska er beðið velvirðingar á þessu."

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook