Fréttir

Saltkjöt og baunir á flestum diskum

Fjöldi fólks tók þátt í sprengidagsleik Goða á Facebook. Þrír voru dregnir út í gær og hljóta saltkjöt fyrir alla fjölskylduna. Óhætt er að segja að Goða-saltkjötið hafi verið rifið út að þessu sinni sem endranær, svo mjög að í sumum verslunum var það orðið uppselt þegar síðast fréttist.

Öruggt má telja að saltkjöt verði á borðum þorra landsmanna í dag, enda gaman (og gott!) að halda í þennan forna sið.

Vinningshafar í sprengidagsleik Goða voru þessir: Ástríður Emma Hjörleifsdóttir, Árni Jón Straumberg Guðmundarson og Inga Magnúsdóttir. Er þeim og öðrum þökkuð þátttakan og þremenningunum óskað innilega til hamingju.

Facebook síða Goða


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook