Fréttir

Sauðfjárbændur athugið!!

Ágæti innleggjandi.

Nú líður að sláturtíð og til upplýsinga viljum við láta ykkur vita að slátrað verður á Húsavík um 500 lömbum þann 15. ágúst n.k og svo mun sláturtíð hefjast 29. ágúst.

 

Á Höfn er áætlað að slátra 1 dag í viku frá verslunarmannahelgi.

Hin eiginlega sláturtíð á Höfn, hefst 18. september.

Vinsamlegast sendið inn sláturfjárloforð hið fyrsta. Hægt er að gera það með því að fylla út eyðublað sem má nálgast HÉR einnig er hægt að hringja í síma 460-8888 Húsavík / Höfn 460-8870

Fréttabréf með nánari upplýsingum verður sent út fyrir miðjan ágúst.

Kveðja góð

Sigmundur Hreiðarsson, stöðvarstjóri, Húsavík

Einar Karlsson, stöðvarstjóri, Höfn


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook