Fréttir

Slátrun á áætlun - seinni ferð hefst á morgun á Húsavík

Haustslátrun sauðfjár í sláturhúsum Norðlenska á Húsavík og Höfn gengur prýðilega. Á Húsavík er fyrri umferð dilkaslátrunar lokið og síðari umferð hefst á morgun, miðvikudag.

Það sem af er sláturtíðinni hefur fallþungi dilka á Húsavík verið 16,17 kg, en í allri sláturtíðinni í fyrra á Húsavík var fallþunginn 16,08 kg og haustið 2007 var hann 15,21 kg.

Miðað hefur verið við að haustslátruninni ljúki á Húsavík þann 23. október, en væntanlega bætast tveir sláturdagar við frá upphaflegri áætlun, að sögn Sigmundar Hreiðarssonar, vinnslustjóra.

Slátursala er komin í fullan gang á Húsavík og gengur vel. Vert er að undirstrika að henni lýkur þar föstudaginn 9. október. Innleggjendur fá slátur með 50% afslætti.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook