Stærsti skrokkur í sögu Norðlenska - 526 kg!!!
Við hann standa Bára
Heimisdóttir, dýralæknir
og Atli Steinbergsson,
verkstjóri í Norðlenska.
Umrædd kýr er eins og áður segir úr Hleiðargarði í Eyjafjarðarsveit, en þar eru ábúendur Þór Jóhannsson og
Helga Sigurðardóttir. Þar á bæ er bæði mjólkur- og kjötframleiðsla. Kýrin sem um ræðir segir Þór að hafi
verið fjögurra vetra og var hún búin að bera tveimur kálfum. Kálfarnir gengu undir henni í bæði skiptin og því hefur
mjólkin úr kúnni aldrei verið notuð til manneldis.
Ástæðan fyrir þessari miklu stærð á kúnni er sú að móðirin var Aberdeen Angus holdablendingur og hún var síðan
sædd með Limósín-holdakynssæði. Útkoman var þessi risavaxni gripur.
"Sem kálfur var hún ekkert óeðlilega stór, en síðan var vöxturinn gríðarlega hraður og kýrin varð fljótt
langstærsti gripurinn hjá okkur. Sem betur fer var hún mjög meðfærileg og skapgóð," segir Þór Jóhannsson.
Sem fyrr segir er bæði mjólkur- og kjötframleiðsla í Hleiðargarði. Þór segir að 12-14 holdakýr séu hafðar til undaneldis
fyrir kjötframleiðsluna en íslensku kýrnar til mjólkurframleiðslu.
Guðmundur Steindórsson, nautgriparæktarráðunautur á Akureyri, segist aldrei hafa heyrt um svo þungan kýrskrokk hér á landi. "Mig
rámar í að allt að tíu ára gömul naut hafi kannski náð þessari þyngd, en alls ekki kýr. Þetta er mjög
sérstakt," segir Guðmundur.
Hleiðargarðskýrin fór ekki á vigt áður en henni var lógað í gær og því er lífþungi hennar ekki kunnur.
Guðmundur Steindórsson áætlar út frá fallþunganum að á fæti hafi kýrin farið eitthvað yfir tonnið.