Sumarslátrun hafin hjá Norðlenska
Sumarslátrun hófst hjá Norðlenska á Húsavík í gær. Í þessari viku verður um 500 lömbum slátrað og í næstu viku verður um 1500 lömbum slátrað. Slátrun hefst síðan daglega með hámarksafköstum þann 23.ágúst. Áætlað er að slátra um 90.000 fjár í sláturtíðinni.
Að sögn Reynis Eiríkssonar framleiðslustjóra Norðlenska hefur undibúningur gengið vel. " Nánast er búið að fullmanna sláturhúsið en sláturtíðin hefur 70-80 stððugildi. Um helmingur starfsmanna kemur erlendis frá. Þá hafa bændur einnig horft til þess að koma með sláturfé fyrr til okkar og við hófum undibúning að því í raun síðasta haust".
Útflutningur á Bandaríkjamarkað hefst í næstu viku og eins verður ný slátrað lambakjöt frá Norðlenska fáanlegt í verslunum strax í næstu viku hér innanland.