Tittlingarnir í Útsvarinu
14.10.2012 - Lestrar 390
Lið Akraness var með það alveg á hreinu um hvað var spurt í Útsvarinu á föstudagskvöldið þegar lambatittlingana frá Norðlenska bar á góma. „Við vissum að spurt yrði um þetta,“ sagði skáldkonan Sigurbjörg Þrastardóttir, einn liðsamanna Akraness.
Auðvitað vissi enginn að spurt yrði um málið, en Sigurbjörg bætti við að það hefði verið alveg rakið! Enda var umfjöllun Snæfríðar Ingadóttur á RÚV ein skemmtilegasta frétt vikunnar og því ekki að undra að spurt yrði um hvað væri þarna á ferðinni.
Hér má sjá Útsvarsþáttinn. Norðlenska kemur við sögu þegar 11 mín. og 20 sek. eru liðnar.