Töluvert birgðatjón hjá Norðlenska
09.10.2004 - Lestrar 60
Töluvert tjón varð á frostnu kjöti í birgðum Norðlenska þegar lyftari rakst utan í rör í einni af frystigeymslum Norðlenska, með þeim afleiðingum að ammoníak lak út. Lögregla og slökkvilið kom á staðin um hálf átta í gærkvöldi og sá um að hreinsa lekann þegar í stað. Töluvert tjón varð á frostnu kjöti í birgðum Norðlenska þegar lyftari rakst utan í rör í einni af frystigeymslum Norðlenska, með þeim afleiðingum að ammoníak lak út. Lögregla og slökkvilið kom á staðin um hálf átta í gærkvöldi og sá um að hreinsa lekann þegar í stað. Að sögn Reynis Eiríkssonar framleiðslustjóra Norðlenska er ekki er vitað á þessari stundu um fjárhagslegt tjón en fulltrúar tryggingarfélags Norðlenska mættu í morgun til að meta tjónið. Þó sé ljóst að verulegt magn af kjöti sé ónýtt. Mestu máli skipti að ekki urðu nein slys á fólki.