Fréttir

Uppbót á innlegg síðasta þriðjung ársins 2010

Norðlenska hefur ákveðið að greiða 9 kr./kg. uppbót á haustslátrun dilka 2010. Auk þess var tekin ákvörðun um að greiða 9 kr./kg. uppbót á innlegg svínakjöts, nautakjöts og nautgripakjöts hjá Norðlenska fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2010.

 

Greitt verður inn á bankareikninga bænda 15. apríl næstkomandi.

 

 

„Það er batnandi afkoma vegna útflutnings dilkakjöts sem leggur grunnin að þessari greiðslu,“ segir Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri Norðlenska. „Við viljum einnig sýna viljann í verki og styðja aðrar búgreinar með álagsgreiðslu - teljum það sanngirnissjónarmið,“ segir Sigmundur.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook