Fréttir

Uppgjör við sauðfjárbændur

Norðlenska kláraði uppgjör við sauðfjárbændur vegna síðustu sláturtíðar þann 28 febrúar síðastliðinn. Í desember var búið að greiða fyrir mestan hluta innleggsins og nú í febrúar var lokauppgjör við bændur er gærur og síðasta greiðsla vegna útflutnings var greidd. Norðlenska kláraði uppgjör við sauðfjárbændur vegna síðustu sláturtíðar þann 28 febrúar síðastliðinn. Í desember var búið að greiða fyrir mestan hluta innleggsins og nú í febrúar var lokauppgjör við bændur er gærur og síðasta greiðsla vegna útflutnings var greidd. Þetta verður að teljast mikil breyting frá fyrri árum en þá bárust síðustu greiðslur til bænda í maí og ágúst. Það er ljóst að batnandi rekstur og betri fjárhagsstaða Norðlenska gerir þetta kleift og er von til þess að svipaður háttur verði hafður á við uppgjör komandi sláturtíðar.

Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook