Verðhækkun á svínum til framleiðenda
07.05.2004 - Lestrar 50
Norðlenska hefur ákveðið að hækka verð á svínum um 40 krónur á Grís 1A frá og með næsta mánudegi. Aðrir flokkar munu hækka hlutfallslega.
Norðlenska hefur ákveðið að hækka verð á svínum um 40 krónur á Grís 1A frá og með næsta mánudegi. Aðrir flokkar munu hækka hlutfallslega.
Framleiðsla á svínakjöti er að komast í jafnvægi eftir langvarandi offramleiðslu og undirboð. Verðhækkanir að undanförnu á fóðri og öðrum framleiðslukostnaði hafa verið umtalsverðar og er hækkun til framleiðenda nauðsynleg til að þeir fái verð sem stendur undir framleiðslukostnaði.