Fréttir

Verðlagning sauðfjárafurða 2010

Norðlenska hefur tekið ákvörðun um verðlagningu sauðfjárafurða fyrir haustið 2010. Niðurstaðan er sú að greiða svipað verð og á síðasta ári fyrir dilkakjöt, að frádregnum 39 krónum vegna geymslugjalds, sem fram til þessa hefur verið greitt til afurðastöðva en samkvæmt nýjustu breytingum rennur nú beint til bænda. Verð fyrir kjöt af fullorðnu verður óbreytt frá fyrra ári.

Ekki eru forsendur fyrir verðhækkunum á markaði innanlands, og það sama má segja um erlenda markaði. Á erlendum mörkuðum er mjög mikil óvissa, fyrst og fremst vegna gengisóvissu en gengi krónu gagnvart evru hefur styrkst um u.þ.b. 17% frá því í ágúst 2009. Þetta veldur lækkun í skilaverði í íslenskum krónum sem því nemur.

Norðlenska greiðir mismunandi verð eftir viku fyrir lambakjöt, það hæsta í upphafi sláturtíðar. Verð fyrir fullorðið verður það sama alla sláturtíðina.

Verðskrána í heild má sjá hér.

Gjaldskrá Norðlenska vegna heimtöku mun hækka sem nemur kostnaðarhækkunum og einnig hækkunum vegna geymslugjalda. Þessi gjaldskrá mun birtast á vef Norðlenska á næstu dögum, og einnig í fréttabréfi sem sent verður út innan tíðar.

Greiðslufyrirkomulag

Norðlenska greiðir 80% af innleggi, föstudag í viku eftir innlegg.

20% af innleggi í ágúst og september verður greitt 12. nóvember.

20% af innleggi í október verður greitt 12. desember.

Nánari upplýsingar gefur Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri Norðlenska.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook