Fréttir

Verð fyrir lömb hækkar um 6,3%

Norðlenska hefur tekið ákvörðun um verðlagningu sauðfjárafurða haustið 2012. Verðskráin tekur tillit til sjónarmiða bæði almennings og bænda. Norðlenska verður með samkeppnishæft verð til bænda og mun endurskoða verðskrána ef tilefni verður til.

Verð á lömbum hefur verið hækkað um 6,3% frá verðskrá haustsins 2011 en hækkun verður ekki á verði fyrir fullorðið.

Einungis er um eina verðskrá að ræða hjá Norðlenska.  Sama verð er til þeirra sem eru með viðskiptasamninga og annarra sem vilja slátra og kynnast fyrirtækinu.

Um sláturfyrirkomulag og greiðslukjör

Forslátrun hefst á Húsavík í viku 35 (27. til 31. ágúst), þó með fyrirvara um að sláturloforð berist. Ekki verður slátrað með fullum afköstum á Húsavík fyrr en í fyrstu heilu viku september.

Forslátrun hefst einnig á Höfn í viku 35 (27. til 31. ágúst), þó með fyrirvara um að sláturloforð berist. Haustslátrun hefst síðan með fullum afköstum á Höfn þann 18. september.

Álagsgreiðslur Norðlenska á grunnverð verða með sama hætti og árið 2011. Álagsgreiðslur koma fram í verðskrá í viðhengi.

Bændur eru hvattir til að hafa samband við Norðlenska vegna þessa.

Þeim sem áhuga hafa á forslátrun er bent á að hafa samband við Sigmund á Húsavík (sími 840 8888) og Einar á Höfn (sími 840 8870).

Greiðslufyrirkomulag verður eins og á fyrra ári.

Smellið HÉR til að sjá verðskrána. Hún er birt með fyrirvara um prentvillur.


Svæði

Norðlenska ehf

Grímseyjargötu
600 Akureyri

s. 469-4500

kt: 500599-2789

upplysingar@nordlenska.is

Póstlistinn

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir sendar á netfangið þitt.

Vörumerki Norðlenska

GoðiKEAHúsavíkur kjötBautabúrið

Goði á facebook